14. ágúst 2007 klukkan 11:36
Hæ hæ og takk kærlega fyrir seinast!
Ég er loksins búin að fara í gegnum mínar myndir og henda þeim inn á netið. Tók smá tíma allt saman, en þetta er allavega komið. Myndirnar má finna
hér.
Annars vil ég bara nota tækifærið og hvetja alla aðra sem voru með myndavélar á lofti að skella þeim hérna inn, svona fyrir okkur hin að skoða

Hlakka svo bara til að hitta ykkur aftur eftir 5 eða 10 ár...
Lena Dóra
11. júní 2007 klukkan 20:08
Hæ hæ öll sömul, og takk æðislega fyrir síðast, skemmti mér ekkert smá vel eins og örugglega þið öll.
Er mjög spennt að sjá myndir frá ykkur hinum, var sjálf að setja inn myndir á síðuna mína, ef ykkur langar að skoða..
Þetta er sko eitthvað sem við verðum að endurtaka og sem fyrst, persónulega finnst mér 10 ár allt of langur tími, svona þegar við erum búin að taka af skarið og halda okkar fyrsta reuninon.
Set hérna inn link á myndirnar
http://www.123.is/album/display.aspx?fn=hahaha&aid=-68962179
Dagný
07. júní 2007 klukkan 17:47
þá er þetta bara alveg að bresta á, loksins :)
Og svo að allir mæti á réttan stað á réttum tíma er þetta sumsé á MORGUN, föstudaginn 8.júní (vona nú reyndar að allir séu með það á hreinu)
í
Engjateig 9 (salur Verkfræðingafélagsins - hurð vinstra megin)
og
byrjar um klukkan 21:00
ef þið eruð með einhverjar séróskir um tónlist biðjum við ykkur um koma með hana á diski og einnig ef þið eigið einhverjar skemmtilegar myndir sem þið hafið skannað inn.
Hlökkum mikið til að hitta ykkur öll
kv. Áslaug og Lena Dóra
Áslaug
31. maí 2007 klukkan 19:49
(mæli með þessum sketch -> HÉR)
hæhæ
sendi út meil í gær með greiðsluupplýsingum en fékk nokkur til baka, þau netföng voru greinilega eitthvað röng.
Þeir sem fengu ekki ímeil í gær mega því gjarnan senda mér póst með réttu netfangi og fá í staðinn meilið sem ég sendi í gær :)
Ég er annars farin að hlakka gífurlega mikið til og vona að þið séuð líka að pissa í ykkur af spenningi (nei ok ekki pissa í alvuru á ykkur - skammgóður vermir!)
Er komin með playlista með yfir 100 lögum frá þessu hressa tímabili (búin í prófum, ekki byrjuð að vinna - hef augljóslega nógan tíma aflögu!)
eníveisss... hefur enginn neitt meira að segja? Langar ykkur ekkert að deila með okkur hinum hvað þið eruð að gera þessa dagana, eða hvað hefur drifið á ykkar daga síðan í Snæló???
Minni á að Lena Dóra getur reddað ykkur bloggréttindum - lenadora81@gmail.com
látið nú í ykkur heyra
kv. Áslaug
Áslaug
25. maí 2007 klukkan 01:35
Nú eru 23 manns búnir að staðfesta komu sína á reunion-ið en ég veit um miklu fleiri sem ætla.... en við veeeerðum að fá að vita hverjir ætla að koma til að geta reiknað út kostnað og þess háttar.
svo um að gera að SKRÁ sig a.s.a.p! Veit að einhverjir náðu því ekki eftir að hafa lesið bréfið sem Lena Dóra sendi út, en það stóð sumsé þar :)
skrá sig skrá sig skrá sig núúúúna - eða já sem allra allra fyrst! Svo ég geti hent inn kostnaðinum eftir helgi
kv. áslaug
Áslaug
23. maí 2007 klukkan 11:13
Jæja jæja. Nú fer alveg að koma að þessu... Ekki nema 12 dagar í 8. júní, svo það styttist óðum. Vona bara að allir séu farnir að hlakka til!
Það hefur komið hérna fyrirspurn um að bjóða kennurunum að kíkja á okkur og ég held það gæti bara orðið ferlega skemmtilegt.
Erum bara að velta því fyrir okkur hvort þið séuð með einhverja sérstaka kennara í huga? Ásta, Haukur og Basli eru væntanlega mjög ofarlega á blaðinu. Hvað segið þið? Endilega tjáið ykkur um hvern/hverja þið viljið fá. Vorum náttúrulega með fullt fullt af öðrum kennurum svo látið heyra í ykkur!
við viljum svo biðja ykkur öll að senda Áslaugu mail fyrir föstudaginn og láta vita hvort þið mætið ekki alveg örugglega, svo við getum byrjað að reikna út kostnaðinn af þessu öllu saman.
Annars er póstur á leiðinni til allra (sent samkvæmt þjóðskrá) sem ætti að vera að detta í póstkassana uppúr hádegi í dag , allra seinasta lagi á morgun þar sem nánari upplýsingar er að finna um stað og stund og þess háttar.
En í bili: Allir að senda Áslaugu mail aslauge@hi.is og tilkynna komu sína og endilega tjá sig um kennaraamálin. Hverjum eigum við að bjóða að kíkja á okkur 
Lena Dóra
19. maí 2007 klukkan 21:40
Ég er búinn að vera að skoða bekkjarmyndina úr 10 bekk og verð ég að játa að rétt eins og Elín man ég ekki alveg öll nöfnin. Er einhver til í að telja upp nöfnin eftir röðun okkar á myndinni svo maður geti fyllt upp í eyðurnar.
Ég kveiki á öllum andlitum og tek ég eftir að það vantar allavega tvo á myndina, Kalla og Guðmund Steinþór. Ég velti því fyrir mér hvort það vanti fleiri. Einhverjar uppástungur?
Læt þetta gott heita í bili.
Kveðja Ólafur Fannar.
Ólafur Fannar
15. maí 2007 klukkan 14:25
Ragnhildur
14. maí 2007 klukkan 17:07
Hey kidz, held þið ættuð að kíkja í gestabókina okkar... :)
Ragnhildur
10. maí 2007 klukkan 01:26
Það er víst kominn tími til að deila með sér planinu, svo að þið farist ekki úr áhyggjum (sumirmeirenaðrir). :)
Við erum blessunarlega komnar vel á veg með að plana þetta allt saman, enda erum við jú “sjálfkjörnar” í reunion nefnd og töluðum við fyrst saman um þetta í cirka nóvember. Að því sögðu þá ætla ég að segja ykkur að planið er að hafa þetta bara eins og eitt stórt og gott partý. Að panta mat er alltaf vesen og þá sérstaklega fyrir svona marga, því legg ég til að fólk skelli sér bara út að borða með gömlum vinum og mæti svo galvaskt í salinn upp úr átta/níu. Öll partý sem banna manni að taka áfengi og selja vínið á okurverði, eru ömurleg partý – því geta allir tekið sitt áfengi með sér í þennan sal og ef einhver afgangur verður af pengene sem við borgum öll – þá verður hann að sjálfsögðu notaður til að bjóða upp á eitthvað hressandi. Í sambandi við tónlistina, þá jú, það verður tónlist – nóg af henni.
Okkur fannst ekki málið að hafa einhvern einn DJ, sama hve góður hann er, þar sem okkur finnst það bara setja þá manneskju fasta við plöturnar/diskana/tölvuna en ekki í gúddí fílíngnum með okkur hinum. Því höfðum við hugsað okkur að við værum með nokkra playlista (t.d er ég búin að vera að safna í Snælands-playlista undanfarið) og svo væri hann í tölvu/ipod sem hægt væri að fikta í ef fólk fær grænar af Take That, Babylon Zoo, Wu Tang, Blur og Prodigy, svo eitthvað sé nefnt.
Singstar er líka alveg inn í myndinni, ef fólk er æst í það, en Baldvin ég er ekki viss um að þarna ”when I’m 64” sé til í singstar!
Það er greinilegt að fólk hefur skoðanir, sem er gott og blessað og alltaf gott að fá hugmyndir. Endilega segið frá ef þið eruð eitthvað mótfallin þessu lausa plani hjá okkur og ef þið hafið nýjar hugmyndir, en bið ykkur samt líka að leggja smá traust í hendur okkar ofurskipuleggjaranna.
Ég er búin að tala við mjög marga sem hafa komið að skipulagningu á svona reunioni og hafa farið í þannig og því sankað að mér upplýsingum um hvað virkar og hvað virkar alls ekki. Meðal annars var það sem fór illa í fólk var að láta kosta of mikið, hafa of mikið skipulag, þurfa að borga fyrir vínið og hafa einn DJ (því það fór svo að vinirnir hans voru í góðum fíling á meðan restin var ekki alveg á sömu nótum)... en endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst, svo þetta verði nú sem skemmtilegast fyrir alla og sem flestir mæti!
Að lokum vil ég mæla með því við þá sem hafa mikið að segja að skella því í blogg, þar sem þetta blogg er opið fyrir alla í árgangnum og hugsanlega nenna ekki allir að skrolla niður hátt í 20 komment eftir hverja færslu .
Vona að þið hafið það gott, og þá sérstaklega þeir sem eru í skóla og sjá glitta í próflokin ... víhú :)
kveðja
Áslaug
p.s Lena Dóra er í miðjum klíðum að koma saman bréfi svo hægt sé að senda á lögheimili allra, með því móti náum við vonandi að láta alveg alveg alla vita af þessu geimi.
Áslaug